17. nóvember frá kl. 9-17
Stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands
Markmið ráðstefnunnar er að efla tengsl milli þeirra sem sinna vistfræðirannsóknum. Til að ná þessu markmiði verður tryggt að góður tími verði fyrir veggspjaldakynningu og óformlegar umræður. Ágripum skal skila inn fyrir 1. nóvember á netfangið vistfraedifelag@gmail.com. Taka skal fram hvort óskað er eftir að halda erindi eða kynna veggspjald. Ágrip skulu vera í leturgerðinni Times New Roman (12 punkta) og á íslensku eða ensku. Tilgreina skal titil kynningar, höfunda og aðsetur þeirra auk netfangs flytjanda. Nánari upplýsingar um skráningu á vefsvæði ráðstefnunnar.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!