Vistfræðifélag Íslands var stofnað í Öskju náttúrufræðihúsi, stofu N-132, þann 6, nóvember 2009. Hlutverk félagsins er að efla íslenskar vistfræðirannsóknir. Hlutverki sínu hyggst félagið sinna með því að:
- Stuðla að kynningum á rannsóknum íslenskra vistfræðinga og vistfræðinema,
- efla tengsl milli þeirra sem sinna vistfræðirannsóknum,
- stuðla að samræmingu vistfræðirannsókna á Íslandi.
Stjórn Vistfræðifélags Íslands skipa:
- Ingibjörg Svala Jónsdóttir, formaður
- Gísli Már Gíslason, gjaldkeri
- Erpur Snær Hansen, ritari
- Tómas Grétar Gunnarsson, meðstjórnandi
- Jóhann Þórsson, meðstjórnandi
- Ágústa Helgadóttir, meðstjórnandi
- Freydís Vigfúsdóttir, varastjórnarmaður
Netfang Vistfræðifélagsins er vistfraedifelag@gmail.com