Fimmta ráðstefna Vistfræðifélags Íslands 3. Mars 2016 – önnur tilkynning

Fimmta ráðstefna Vistfræðifélags Íslands 3. mars 2016 – önnur tilkynning

Fimmta ráðstefna Vistfræðifélags Íslands verður haldin fimmtudaginn 3. mars í fundarsal Verkís að Ofanleiti 2, Reykjavík.  Ráðstefnan er vettvangur til að kynna vistfræðirannsóknir á Íslandi á formi erinda og veggspjalda og eru því allir vistfræðingar hvattir til að senda inn ágrip. Í ár hvetjum við sérstaklega þá sem sinna rannsóknum á villtum dýrum sem talin eru valda tjóni og nemendur sem kynntu verkefni sín á Nordic Oikos ráðstefnunni til að senda inn framlag. Ef fleiri óskir um erindi berast en tíminn leyfir verður hluta höfunda boðið að kynna rannsóknir sínar á veggspjöldum.

Gert er ráð fyrir að hvert erindi sé 12 mínútur + 3 mínútur í umræður.

Sniðmát veggspjalda er nokkuð frjálst.

Höfundar mega flytja erindi sín á íslensku eða ensku en æskilegt er að glærutexti og veggspjöld verði á ensku.

Aðalfundur félagsins verður haldinn sama dag.

Frestur til að senda inn ágrip er til 12. febrúar

Frestur til að skrá sig á ráðstefnuna er til 29. febrúar

Athugið að mikilvægt er að þeir sem senda inn ágrip skrái sig einnig til þátttöku. Hvort tveggja fer fram hér:

Ráðstefnugjald er 2000 kr. og greiðist við skráningu. Innifalið er kaffi/te, léttur hádegisverður og hressing í ráðstefnulok.

Engra ráðstefnugjalda er krafist af félagsmönnum.

 

——– English ——-

The fifth Ecological Society of Iceland  conference, 3rd of March 2016 – second announcement

The fifth conference of the Ecological Society of Iceland will be held on 3rd of March 2016 at Ofanleiti 2, Reykjavík.  The conference is a forum for presenting ecological research in Iceland either orally or by posters. All ecologists are encouraged to submit an abstract.  This year we especially encourage researchers who have been engaged in studies of wild animals that are regarded as pests and students participating in the Nordic Oikos conference to submit a contribution. If we get more requests for oral presentations than time allows, some authors will be invited to present their research by posters.

Each talk will be 12 minutes long +3 minutes for discussion.

Poster format is free.

Presentations can be either in English or Icelandic, but slides and posters should preferentially be in English.

The annual meeting of the Society will be held the same day.

Deadline for submission is 12 February.

Deadline for registration is 29 February.

Observe that it is important that those who submit an abstract also register.

For abstract submission and registration go to:

Conference fee is 2000 ISK and should be paid at registration. Included: coffee/tea, light lunch and refreshment at the end of the conference.

No registration fee for members of the Society.

 

Þessi færsla var birt undir Ráðstefnur. Bókamerkja beinan tengil.